Málverk Páls

 

Ferill Páls sem myndlistarmanns hófst við 12 ára aldur þegar hann í faðmi fjallahringsins á Húsafelli tók að færa það sem fyrir augun bar á spjöld. Eftir það var ekki aftur snúið!Hross í stórhríð (1982)

Þegar námið í Myndlista- og handíðaskóla Íslands hófst (1977) innritaði hann sig í málaradeild skólans og útskrifaðist af henni vorið 1981.

Fyrstu árin eftir útskrift úr skólanum málaði Páll mest olíumyndir á striga og myndir af bændum og nágrönnum sínum í sveitinni, ýmist sem andlitsmyndir eða verk í fullri stærð. Fjöllin og náttúran, hraunið og skógurinn voru viðfangsefni hans að mestu til nokkurra ára.

Eftir opnun einnar af fyrstu einkasýningum Páls, árið 1982, skrifar Bragi Ásgeirsson listrýnir hjá Morgunblaðinu m.a.: "Hann er einn þeirra manna sem eru símálandi og láta sér ekki nægja að  að mæta reglulega í skóla heldur nota hverja frístund til að munda pentstúfinn. Það má með sanni segja, að þessi maður sé gæddur málaragleði í óvenju ríku mæli og að auk hefur hann þann nauðsynlega eiginleika til að bera, að láta ekki hugfallast þótt að hlutirnir mistakist, heldur einungis ótrauður áfram og það er einmitt aðall þeirra sem vilja ná langt í list sinni". Síðar segir Bragi: "Jafn kært myndefni og skógurinn, jörðin, himininn og fjallagarðurinn er honum t.d. andlit fjósamannsins á staðnum eða bændanna í sveitinni".

Litirnir í myndum Páls eru ferskir og hreinir og oft ná þeir vel fram í þeim myndstíl sem hann hefur tileinkað sér.

Samhliða annars konar listsköpun, þá helst höggmyndagerð, hefur Páll alla tíð málað í einhverjum mæli. Á tímabilum á eitthvað annað listform hug hans allan, þó ætíð sé stutt í pensilinn.